23 febrúar 2006

Sex Inspectors

Hvað fær fólk til að fara í sjónvarpið með kynlífsvandræði sín?

Hvað fær fólk til að berhátta sig fyrir framan myndavélar frá sjónvarpsstöð þegar það er svo viðkævmt fyrir eigin útliti að það vill ekki einu sinni að makinn sjái meira en andlitið?

Hvernig dettur fólki í hug að gera þetta áður en það reynir að bjarga einhverju sjálft?

Hvernig væri t.d. að prófa að gera eitthvað sem makinn vill til að gleðja hann og athuga hvort spennan minnkar ekki smá?

Nei, nei! Sjónvarpsmyndavélar og athygli heimsins er greinilega málið. Kannski er þetta fólk bara að sækjast eftir því. Kannski fær þetta fólk eitthvað út úr því.

Maður spyr sig!

© Ísak Sigurjón, 2006 ⊥ HTML 4.01CSS